FLUGBJÚGAÐ LIFI :)

VINA-BJÚGA ER ALLT SEM ÞARF!

04.10.2007 16:50:36 / hulda

Nýtt blogg!!!

www.huldagunnars.bloggar.is

Munið eftir að skrifa smá skilaboð og leyfa mér að sjá hverjir eru að lesa bloggið mitt :)...það koma svo margir á dag inn á síðuna en ég veit ekkert hverjir! Gott væri að fá að sjá pínu hverjir lesa :) . Takk fyrir. Þið eruð æði.


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 14:46:32 / hulda

Spenningurinn

 er að verða óbærilegur! Næstu helgi ætla ég nefninlega að fara á AÐALfund Kven(n)félagsins Kidda. Ég fékk sendibréf þess efnis nú í síðustu viku og það sem við fengum að vita í því bréfi er að fundurinn byrji kl 13 í húsi í Þolló og framhaldið óráðið fyrir okkur allar nema þau tvö Bjúgu sem skipulögðu. Það sem við áttum að taka með okkur voru upp talið í bréfinu og þar við situr!...þannig að það er ekkert annað að gera en að pakka niður í tösku og bíða við útidyrahurðina fram á Laugardag ;). Mér skilst við mætum allar nema sú sem er í útlegð í danaveldi.

Þessi vika verður svolítið spes því amma og afi eru flutt heim til Steina frænda, skrýtið að heimsækja þau þangað. Svo er ég byrjuð að vinna aukalega í Skálanum...og litla systir mín farin að kenna mér að vinna (hehe)...eggið farið að kenna hænuni ;);). Ég byrjaði í gærkveldi og var þá bara í æfingu í 3 tíma en þarf svo að vinna í kvöld frá 18- 24 með brúnku minni litlu systur :). Ég er bara með einhverjar 9 vaktir í mánuðinum þannig að þetta verður vonandi bara ljómandi gott...held ég :).

Það er búið að vera mikið að gera í kringum Kristinn minn og ekkert lát þar á...fundir og annað sem eru hluti af öllu ferlinu sem hann greyið er búinn, og er að ganga í gegnum. Að vera með ódæmigerða einhverfu, athyglisbrest, vera þunglyndur og svakalega kvíðinn hlýtur að vera mikið stór pakki fyrir hvern sem er að díla við og hvað þá að vera 10 ára strákaskott og þurfa að komast í gegnum hvern klukkutíma fyrir sig með allt þetta á bakinu. Hann greyið stendur sig samt alveg eins og hetja, nátturlega með smá áföllum við og við, en stendur sig vel engu að síður. Næst á dagskrá fyrir utan fundi og annað er að við foreldrarnir þrír förum á námskeið hjá greiningar og ráðgjafastöð ríkisins og gerumst sérfræðingar í hans veikindum. Við erum skráð á námskeið 14. Nóvember um Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á einhverfurófi sem verður haldið í gerðubergi .http://www.greining.is/greiningarstod.nsf/form/namNam?OpenForm&dunid=A25D9A54DFDF12EA0025733E004A4F94&munid=DADF8524F33CB0A500256C940039E530

Nú og svo er það bara bókasafnið og internetið sem eru okkar heimildir enn sem komið er.

Jæja nóg í bili og munið að Bjúgun eru best.

Hulda "það beit mig hestur" Gunnarsdóttir

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 14:00:36 / hulda

Flutningar

Amma mín og Afi eru að flytja!  Þau eru búin að búa í húsinu sínu síðan þau fluttu frá Selfossi 1964...eða í 43 ár! Mér finnst svakalega skrýtið að fara til þeirra núna og sjá allt dótið farið niður af veggjum og út úr húsi! Að hugsa sér að svo verður eitthvað annað fólk flutt inn í húsið þeirra eftir nokkra daga...ég er pínu sorgmædd yfir þessum :(...en þau eru svo að flytja í nýtt hús og minna sem nátturlega hentar þeim ótrúlega vel:)...amma sagði nú í morgun að við yrðum að spá líka aðeins í því að þau væru að verða áttræð!...bull og vitleysa Amma og Afi...þau eru bara tvítug ;).

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 13:19:01 / hulda

Þriðja Serían

af Grey's Anatomy er næst á dagskrá hjá mér :), ég er búin að hala þeim niður í tölvuna og bíð spennnnt eftir dauðum tíma til að geta horft á þá ;)...ég skil ekki enn hvernig þeir gátu farið framhjá mér í allan þennan tíma!...hjúkket að ég byrjaði að horfa á þá :)...ég veit hreinlega ekki hvernig líf mitt væri án þeirra ;).

Leikárið byrjað og verður haldið Leikfélagspartý 29. September...vúhú það er einmitt það sem vantaði!...alltaf gaman að byrja á Partýi...annað er bara bull  ;).Partýið verður haldið á kaffistofunni ( ;) ) og vonandi mæta sem flestir :).

Aðalfundur Kven(n)félagsins Kidda er svo á næsta leiti, nánar tiltekið 6. Október. Ég bíð  hreinlega í ofvæni eftir upplýsingum frá skipuleggjendum þetta árið um fundinn og get ekki (og ég meina það ) haldið saur yfir því!!!  HALLÓ Bjúgun mín! Hvenær fáum við eiginlega að  vita eitthvað um fundinn???

Minn yndislegi eiginmaður á svo afmæli á morgun og er ég á leið í bakstur í kvöld :).

BJÚGUN LIFI


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 17:55:37 / hulda

...Er orðin húkkt

á Grey's Anatomy...að ég skyldi ekki fatta þetta fyrr!...

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 17:41:20 / hulda

?

I seem to be a mistery

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 14:30:25 / hulda

:(

MÉR ER ILLT.

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2007 17:50:53 / hulda

Fimmtudagur!

Það hefur nánast ekkert verið að gera hjá mér síðan leikritið kláraðist í vor...en núna í dag þá kemst ég ekki einusinni yfir það sem er að gerast. Í kvöld get ég verið á 3 stöðum í einu!!!...týpískt að þurfa að sleppa einhverju!...og svo er ekkert að gerast! MAGNAÐ ALVEG!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 14:48:11 / hulda

Nýr fjölskyldumeðlimur fæddur :)

Hún Margrét Björg litla frænka mín eignaðist stúlku í gær (22.Ágúst) kl 23:20 sem vó 3205 gr, tæpar 13 merkur, og var hún 50 cm. Stúlkan fæddist með mikið dökkt hár. Innilega til hamingju með barnið Margrét og Magnús :) .


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 12:41:14 / hulda

Hann átti afmæli í gær!

Í gær voru heil tuttugu og eitt ár síðan litli bróðir minn fæddist!

Hann Rúnar minn litli bróðir fæddist að kvöldi 19 Ágúst 1986. Hann fæddist fjólublár að lit og var  Gunna frænka inni hjá mömmu og fylgdist með þegar Rúnari mínum var skellt inn í hitakassa því naflastrengurinn hafði verið vafinn utan um hálsinn á honum....hann hefur ábyggilega ekki geta verið kjurr í móðurkviði...ekkert frekar en núna ;). Hann var fljótur að jafna sig og var kominn heim áður en við var litið. Hann er algjört gull litli anginn;). Hann eyddi afmælisdegi sínum í Búlgaríu í góðra vina hópi...Til hamingju með afmælið Ninni minn :)...hlakka til að sjá þig ;) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 12:23:39 / hulda

Var klukkuð!

Hripa 8 staðreyndir á blað:

1. Ég er elst systkina minna!...Hef eignað mér hlut í hinum.

2. Börn sogast að mér eins og mý á mykjuskán og á ég orðið stóran hóp af litlum vinum ;).

3. Drengirnir mínir eru líf mitt og yndi.

4. Er félagi í nokkrum félögum.

5. Hef yndi af kaffispjalli við góða vini.

6. Er kaffisjúklingur.

7. Ætla mér að taka háloftin með trompi í framtíðinni eða þegar ég verð stór...gengur bara eitthvað illa þetta með "stór" partinn og hef ákveðið að drífa mig í stækkun til Rússlands.

8. Ferðalög! Það er ekkert sem jafnast á við það að ferðast :).

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 15:46:18 / hulda

barnið heim :)

Jæja þá eru liðnar 2 vikur síðan Kristinn minn fór til Marmaris í Tyrklandi og er hann á leiðinni heim núna. Hann verður lentur líklega um 4 í nótt drengurinn:). þessar 2 vikur eru búnar að vera eins og hálft árið að líða!!!  Við hjónin erum á leið upp í Borgarfjörð á ættarmót Gústa megin og verðum þar í tjaldvagninum okkar um helgina og Kristinn minn kemur svo á morgunn til okkar...ji hvað ég hlakka til að knúsa drenginn, ég bara vissi ekki að það væri hægt að sakna einhvers svona svakalega mikið...ÉG HREINLEGA GET EKKI BEÐIÐ eftir að hitta hann :). Við erum búin að vera eins og vængbrotnir fuglar í þessar 2 vikur!

Svo er það bara góða veðrið og góða skapið sem skiptir öllu máli:) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 15:07:49 / hulda

Komin heim og vel það.

Þá er ég loksins lent. Löngu komin heim að vísu frá Costa del sol en ný lent engu að síður :).Við höfðum það nátturlega alveg hrikalega gott í sólinni og gerðum allt sem hægt er að gera í útlöndum...þ.e...sól...sandur...góður matur...góður félagsskapur og allt það :). Hlakka til að eiga svo gott sumar á Íslandi! ef veður-gvöðirnir leyfa;). Kristinn Daði minn er svo farinn aftur til útlanda (kom með okkur líka) og er nú á leiðinni til Tyrklands (Marmaris) með mömmu sinni og fleirum. Hann er heppinn að eiga marga að barnið ;)...ég reyndi að troða mér í ferðatöskuna hans í gær en það gekk ekki og hélt barnið að þetta gengi ekki upp því hann yrði þá örugglega með yfirvigt ;)...:). Vonum að lífið leiki við þau í Tyrklandi.

Loksins loksins er sumarið komið á Íslandi og ekki fræðilegur möguleiki að í dag sé hægt að fara EKKI í útilegu. Ef fólk er í þessum útilegu gír á annað borð þá er þetta akkúrat helgin. Auglýsi hér með fólki með mér í góða útilegu um helgina.

Nú er komin ný utanlandsferð upp á teninginn!...Milton Keynes í september...stelpuferð! ji hvað það verður gaman! Ég er strax orðin spennt...hihi

Lífið er bara snilld :):):)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 09:09:54 / hulda

Ég er komin í Sumarfrí :):)

Jæja þá er ég komin í sumarfrí og sólin skín í heiði :)!

 Þá er sumarið loksins komið og tími til að fara í sumarfrí og sleikja sólina innan og utan--lands. Leið okkar fjölskyldunnar liggur í fyrramálið til Costa del sol og ætlum við að láta líða úr okkur þar í 2 vikur. Svo ætla ég að vera í fríi í 1-2 vikur í viðbót við það svona í beit og geyma annaðhvort 1 eða 2 þar til seinna í sumar. Gústi minn fer nefninlega beint að vinna þegar við komum að utan. Mamma mín og pabbi ætla með okkur í ferðina og hlakka ég til...þetta er sko kærkomið og tímabært frí :). Við förum til Kef í kvöld og gistum þar.

Bið að heilsa í bili :):):).

 

p.s Hanna! Ég hugsa stöðugt til þín vinkona og þarf að fara að heyra í þér...Hlakka til :) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 12:44:37 / hulda

Afmæli og afmæli

Í dag á mamma mín afmæli. Í gær átti amma mín afmæli. Þær eru unglingar ;). Til hamingju með afmælið dömur :).

 Í dag eru líka bara 8 dagar þangað til við fjölskyldan förum út í sólina. Ég hlakka til :):).


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Nauðsynlegt að skoða :)
Myndirnar mínar
Klukkan